Fyrstu drög að ferðaáætlun
Hér set ég drögin að ferðinni okkar eins og ég gat lesið þau útúr þeim gögnum sem ég hafði handbær. Síðan getum við fyllt inn í rammann eftir því sem nær dregur.
Dagarnir eru vitaskuld óvissir, en ÍÆ segist miða við að fara út á miðvikudegi og heim aftur sama dag tveimur vikum síðar. Hér er miðað við að gist sé í Kaupmannahöfn í eina nótt. Tímasetningarnar eru því réttar, hvað sem dögunum líður.
v Kaupmannahöfn:
- 1. dagur: 12. september: Lent er kl. 12:45 og búast má við að komið sé á hótelið um 14. Einhverjir 2-4 aðilar skipuleggja dagskrár t.d. á Íslendingaslóðir, helstu kennileiti Hafnarbúa (þ.e. krárnar!), búðir, einstaka söfn eða aðra staði. Sumir vilja fara á eigin vegum, aðrir fara hópferðir. Siðdegis er hist t.d. á Hvít og borðað saman um kvöldið.
- 2. dagur: 13. september: Tékkað er út kl. 11-12 og því nauðsynlegt að huga vel að rólegum stað þar sem unnt er að slaka á áður en farið er út á flugvöll fyrir þá sem eru með börn. Hinir geta tekið Strikið eða hvað nú annað. Hér þarf einhver sem þekkir til að huga að slökunarstað því framundan er 12 tíma flug!
- Beijing (Peking).
- 3. dagur: 14. september. Lent er um hádegi að þarlendum tíma (20 að okkar tíma). Samkvæmt þeim ferðadagbókum sem ég hef fundið á Netinu er almennt miðað við að slakað sé á fyrsta daginn, en farið út að borða saman um kvöldið. Fyrsta sinn á ekta kínverskum veitingastað!
- 4. dagur: 15. september. Kínverski múrinn stikaður um morguninn og síðan farið á fjöllistasýningu um kvöldið.
- 5. dagur: 16. september. Gjaldeyrinn fýkur í silkiverksmiðju og borðað er ódýrt um kvöldið.
- 6. dagur: 17. september. Samkvæmt þeirri ferðadagbók sem hér er fylgt hefst hin raunverulega ferð í dag, þ.e. eftir 3 og hálftíma flug er komið til Changsha í Hunanhéraði þar sem dæturnar biðu. Farið er inn á hótel og slakað á um kvöldið.
- 7. dagur: 18. september. Hápunktur ferðarinnar: Dæturnar afhentar um morguninn og ferðin fær nýtt inntak, í stað biðar kemur veruleikinn. Meira er eðlilega um að menn dvelji lengur í herbergjum sínum.
- 8. dagur: 19. september. Dagur sem einkennist af kynnum og pappírsvinnu. Við verðum formlegir foreldrar.
- 9. dagur: 20. september. Heimsóknir, t.d. á barnaheimilið. Nokkuð sem við verðum að ná fram!
- 10. dagur: 21. september. Samskonar dagur og sá næsti á undan, afslöppun og heimsóknir.
- 11. dagur: 22. september. Samskonar dagur og sá næsti á undan, afslöppun og heimsóknir. Hugað að heimferð til Beijing.
- 12. dagur: 23. september. Snúið við til Beijing.
- 13. dagur: 24. september. Skoðunarferðir, m.a. Torg hins himneska friðar. Farið er á ljósmyndastofu til að útbúa passa dætranna.
- 14. dagur: 25. september. Skoðunarferðir. Passinn afhentur. Íslenska sendiráðið í Beijing heimsótt.
- 15. dagur: 26. september. Slakað á fyrir heimförina. Pakkað því sem hægt var niður í töskur.
- 16. dagur: 27. september. Lagt af stað frá Beijing laust fyrir 15 að staðartíma. Komið til Kaupmannahafnar um kvöldmatarleytið (18:30) að okkar tíma (þá er kl. 02:30 næsta dag!!!). Við tekur stutt bið á Kastrup til kl. 19:45. Komið heim um kl. 21 eða 05 að kínverskum tíma. Það er gott að Reykjanesbrautin er tvöföld fyrir þá sem núna þurfa að keyra heim!
Leave a Reply
Trackback this post | Subscribe to comments via RSS Feed