Kínversku stjörnumerkin
Kínverska stjörnuspekin
Er nokkuð ólík þeirri sem við þekkjum best. Í þeirri kínversku eru árin nefnd eftir ákveðnum dýrategundum sem eru 12 talsins. Hvert dýr nær yfir heilt ár sem byrjar samkvæmt austurlensku tímatali á bilinu seinnipartinn í janúar fram í byrjun febrúar. Þannig fylgir sá sem fæðist í byrjun janúar árinu á undan.
Samkvæmt sögunni bauð Búddha öllum dýrunum á jörðinni til sín en einungis 12 svöruðu kalli hans: Rottan, nautið, tígrisdýrið, hérinn, drekinn, snákurinn, hesturinn, geitin, apinn, haninn, hundurinn og svínið. Til þess að þakka þeim nefndi hann ár eftir hverju þeirra og bjó þannig til dýrahringinn. Dýrin voru nefnd eftir þeirri röð sem þau svöruðu kallinu og var þannig rottan fyrsta dýrið til að mæta, síðan nautið, þá týgrisdýrið og svo framvegis. Hver sem fæðist á ári ákveðins dýrss fær eiginleika þess í vöggugjöf. Öll dýrin eru jafnrétthá en þó er ákveðin lukka sem fylgir ákveðnum árum og því betra að fæðast á þeim heldur en öðrum.
En það er ekki nóg með að árin séu kennd við ákveðnar dýrategundir heldur er hvert ár tengt eftirfarandi efnum: Tré, eldur, jörð, málmur eða vatn. Og hefur það áhrif á eiginleika hvers árs.
Árið 2005 var ár hanans og árið í ár er ár hundsins. Við vitum ekki á hvoru árinu börnin okkar eru fædd en líklegra er að þau hafi fæðst á á síðasta ári og þess vegna kemur hér smá lýsing á hvoru ári:
Haninn 2005
Hann er mikil félagsvera og þrífst á athygli annarra. Hann er öruggur með sig og með ákveðna fullkomnunaráráttu. Í veislum er hann hrókur alls fagnaðar og nýtur þess að vera í sviðsljósinu. Hann fylgir eigin eðlishvötum frekar en hlusta á ráð annarra, kann ekki að ljúga og leggur því yfirleitt öll spilin á borðið. Hann er óþreytandi þegar kemur að því að skila verkefnum og klárar alltaf það sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann á það til að vera sérvitur og býr yfir þeirri náttúru að trúa því að hafi alltaf rétt fyrir sér og hefur það líka oftast. Hann gefur þau skilaboð að hann sé til í allt en undir niðri er hann lítill í sér og þarf stöðugt á uppörvun. Haninn getur verið sjálfselskur og næstum því uppáþrengjandi á köflum en hann er alltaf spennandi og getur átt til mikið hugrekki.

Hundurinn 2006
Talið er að fólk sem er fætt í ári hundsins hafi margar af bestu hliðum mannlegrar náttúru: Sterk réttlætiskennd, heiðarleiki og ýti undir sjálfstraust annars fólks með því að kunna að þegja yfir leyndarmálum. En þeir geta líka verið þrjóskir, sjálfselskir og hálfgerðir eiginhagsmunaseggir. Hundurinn hefur lítinn áhuga fyrir peningum en virðist þó alltaf eiga nóg af þeim. Hundurinn er greindur, áreiðanlegur og með sterka réttlætiskennd. Hann er tryggur og tilbúinn að berjast fyrir góðan málstað. Hann er góður hlustandi og því alltaf tilbúinn að hlusta á vandamál vina sinna.

Leave a Reply
Trackback this post | Subscribe to comments via RSS Feed