Undirbúningur!
Við erum átta fjölskyldur á leið til Kína haustið 2006 að sækja börnin okkar sem bíða þar eftir okkur. Hópurinn sem ætlar saman út, samanstendur af tilvonandi foreldrum, tilvonandi systkinum, tilvonandi móðursystur og tilvonandi ömmu og afa. RISAstór hópur með ólíkar þarfir og langanir en öll á leið að því sama… átta litlum börnum sem bíða þar eftir okkur!
Undirbúningurinn er hafinn og það sem enskumælandi kalla "nesting" eða hreiðurgerð. Við erum í henni alveg á fullu: Sumir kaupa kjóla alveg eins og þeir haldi að aldrei verði aftur seldir kjólar á Íslandi, aðrir kaupa skó og allir eru farnir að velta fyrir sér kerrum og mjaðmapokum til að bera börnin; það er sem sagt allt að gerast.
Fyrsti hittingur 21. janúar 2006
Heima hjá Pálínu, Jökli og Laufeyju. Pálína var að vísu pikkföst í kaupmannahöfn en Jökull snaraði fram Gúllassúpu rétt eins og hann væri vanur stórveitingahúsrekstri! Pálína birtist svo um leið og Flugleiðum fannst við hæfi að senda hana heim.
Allir mættu þetta fyrsta skipti nema Jóna María var fjarri góðu gamni því hún kaus að hitta vinkonu sína enda hafði hún aldrei hitt þetta skemmtilega fólk og vissi ekki af hverju hún var að missa. Einar stoppaði ekki lengi því hann fór í afmæli hjá frænda sínum. Hins vegar var mikil gleði hjá litlu dömunum sem renndu sér í rennibraut og hlupu í hringi eins og þeim væri borgað fyrir það. Daniel fylgdist með.
Fullorðna fólkið fór hægt af stað, en þegar tók að síga á seinni hlutann var hópurinn byrjaður að hristast saman og farinn að spjalla um það sem væntanlega tekur við í haust. Snjólaug og Ragnar voru með myndasýningu frá fyrri Kínaferð og við hin sátum agndofa undir og þorðum varla að tala til að missa örugglega ekki af neinu.
Á þessum tímapunkti erum við viss um að fara til Kína í september. Nánar tiltekið 15. september. Okkur finnst það henta vel fyrir kínaferð
04.mars 2006
Ágústína, Kári og Jóna María buðu í næsta hitting. Fjarri góðu gamni voru Ásta, Steini og Katha Aþena. Allir aðrir voru mættir.
Veitingar voru í boði húsráðenda og þegar við vorum búin að belgja okkur út á brauði og kaffi var tekið við að ræða ferðalagið mikla. Kári var vel undirbúinn og var búin að setja upp flotta markmiðsáætlun fyrir okkur og aðgerðaplan fyrir ferðina. Planið miðast við að förum til Kína í september. Á aðgerðaplaninu var meðal annars plön um að hittast ca einu sinni í mánuði (eða á eins og hálfsmánaðarfresti) þar til við færum út. Einnig var á planinu að búa til sameiginlega heimasíðu fyrir hópinn og frekjaðist Anna Kristín til að taka það að sér. Að vísu voru ekki mörg önnur boð
Hópurinn varð hálfdofinn eftir aðgerðaplanið mikla enda nær það 10 ár fram í tímann og það tók að renna upp fyrir hópnum að þetta væri nú aldeilis ferðalagið sem við værum að leggja af stað í.
Ákveðið var að hittast næst 2.apríl.
02. apríl 2006
Að þessu sinni hittumst við heima hjá Snjólaugu, Ragnari, Einari og Önnu Zhu. Tvær fjölskyldur voru fjarri góðu gamni; Ásta, Steini og Katha Aþena; Heiða, Jón Óskar og Telma: þeirra var auðvitað sárt saknað.
Krakkarnir virðast vera að hristast ágætlega saman. Strákarnir dunda sér í strákatölvuleikjum á meðan Jóna María er búin að eignast tvo aðdáendur sem elta hana með stjörnur í augunum hvert sem hún fer.
Við hin, fengum okkur að borða (hvað annað) og ræddum tilvonandi ferð. Snjólaug og Ragnar héldu fyrir okkur aðra sýningu: Að þessu sinni á ýmsum munum frá Kína. Mjög skemmtilegt og fræðandi. Við sjáum fram á að þurfa að tala við gámafyrirtæki og fá einn slíkan til að senda varning heim (shop till you drop).
Miklar umræður urðu um kerrur og hvernig dekk væri best að hafa undir þeim. Mjög spennandi og eins gott að hafa tækniatriðin á hreinu áður en kemur að heimkomu litlu prinsessana okkar (eða prinsanna). Sumir voru búnir að fara að máta og sögðu þetta ótrúlega góða tilfinningu að djöflast um búðina og hafa leyfi til að vera með skoðun á þessum hlutum.. ekki sem áhorfandi heldur sem væntanlegur eigandi að svona farartæki.
Hópurinn er búinn að kaupa mikið magn af myndum um Kína, barnabókum um ættleiðingar og aðskilnað, ferðabækur um Bejing og tungumælakennslubækur og diska. Eftir ferðina getum við pottþétt sett upp verslun
Á þessum tímapunkti virðist ekki lengur raunhæft að stefna á september ferð. Tíminn frá því umsókn fer út og þar til upplýsingar berast um börnin hefur verið að lengjast að undanförnu. Stefnir allt í það að biðin verði 12 mánuðir. Og þetta verði því jólaferð. Við horfum samt ennþá á september og ætlum ekki að gefa það upp fyrr en við þurfum. En kalt mat er samt að við fáum ekki upplýsingar fyrr en í fyrsta lagi í nóvember. Vonandi verða betri fréttir næst þegar við hittumst sem er í maí!
Leave a Reply
Trackback this post | Subscribe to comments via RSS Feed